top of page

Íbúð 205

3 herbergja íbúð á 2. hæð í Kjarnagötu 57.

​Íbúðinni fylgir bílastæði í bílageymslu.

Íbúðin afhendist fullfrágengin. Flísar eru á gólfum baðherbergis, þvottahúss og forstofu en harðparket er á öðrum gólfum. Innihurðir eru hvítar sprautulakkaðar.

Vélrænt útsog er frá baðherbergi, þvottahúsi og eldhúsviftu. Allt neysluvatn fer í gegnum varmaskipti.

Mynd-dyrasími er í íbúðinni.

 

Burðarplata er steypt þar sem einangrun og gólfhitalögn er lögð ofaná áður en sjálf gólfplatan er steypt. Með þessu næst hámarks hljóðeinangrun milli hæða.

Stærðir:

Stærð eignar:

 

-Íbúð:

-Geymsla í sameign:

84,0 fm.

75,2 fm.

 8,8 fm.

Verð:

62,9 millj.

205_Inni.jpg
K57_svalagangur.jpg

Svalagangur

Aðgengi að íbúðum í Kjarnagötu 57 er um rúmgóða svalaganga á norð-austur hlið hússins. Snjóbræðsla er í svalagöngum og þeir klæddur með gúmmíhellum. Glerlokun er á svalagöngum.

Svalir

Svalir eru á suð-vestur hlið íbúðar. Svalirnar eru klæddar með pallaefni. Glerhandriði er á svölum, og hægt er að setja svalarskjól/lokun á þær. Svalaskjól fylgir ekki.

K57_svalir.jpg

Grunnplan

K55_Grunnplan_205.png

Frágangur íbúða

K55_Grunnplan_3d_205.png

Allar innréttingar eru frá danska framleiðandanum HTH. Kaupendur geta valið um tvær útfærslur af innréttingum, Mood eða Oslo.

Mood

efnisval_mood_2.png

Dökkbrún viðaráferð úr harðplasti með hámarks slitþoli í eldhúsi, baði, þvottahúsi og forstofu.

Ljós mokka lituð filma í efri skápum í eldhúsi og fataskápum í herbergjum.

Lamineruð borðplata með ljósri marmara áferð.

Oslo

efnisval_oslo_2.png

Ljós viðaráferð úr harðplasti með hámarks slitþoli í eldhúsi, baði, þvottahúsi og forstofu.

Hvítt lakkað MDF efni í efri skápum í eldhúsi og fataskápum í herbergjum.

Lamineruð borðplata með ljósgrárri marmara áferð.

efnisval_mood_daemi.jpg

Dæmi um eldhúsinnréttingu í Mood

efnisval_oslo_daemi.jpg

Dæmi um eldhúsinnréttingu í Oslo

Eldhús

Efri skápar í eldhúsi eru með innfeldri LED lýsingu. Með eldhúsinnréttingu fylgir bakarofn, keramik helluborð og háfur frá AEG. Gert er ráð fyrir plássi fyrir uppþvottavél. Uppþvottavél fylgir ekki.

Baðherbergi

Veggir á baðherbergi sem mætast við sturtuhorn eru flísalagðir. Veggir við inngangshurð og bakvið innréttingu eru máliðir. Klósettkassi er innbyggður. Glerhurðir eru við sturtu. Spegill á baði er með innfelldri LED lýsingu.

Þvottahús

Í þvottahúsi er innrétting með vaski og plássi fyrir þvottavél og þurkara.

Fataskápar

Fataskápar eru í forstofu, hjónaherbergi og barnaherbergjum.

Fyrirvari

Allar þrívíddarteikningar, bæði af húsi og innréttingum, eru hugsaðar til að gefa nokkuð góða hugmynd að útliti og frágangi, en gefa ekki nákvæma endanlega mynd. Einhver útlits og útfærslu munur getur verið frá þrívíddarteikningum og endanlegri söluvöru.

bottom of page