top of page
201_Inni.jpg

Íbúð 101

3 eða 4 herbergja íbúð á 1. hæð í norður enda Kjarnagötu 55.

Aukin lofthæð er í íbúðum á 1. hæð, 270 cm.

​Íbúðinni fylgir bílastæði í bílageymslu.

Íbúðin afhendist fullfrágengin. Flísar eru á gólfum baðherbergis, þvottahúss og forstofu en harðparket er á öðrum gólfum. Innihurðir eru hvítar sprautulakkaðar.

Vélrænt útsog er frá baðherbergi, þvottahúsi og eldhúsviftu. Allt neysluvatn fer í gegnum varmaskipti.

Mynd-dyrasími er í íbúðinni.

 

Burðarplata er steypt þar sem einangrun og gólfhitalögn er lögð ofaná áður en sjálf gólfplatan er steypt. Með þessu næst hámarks hljóðeinangrun milli hæða.

Stærðir:

Stærð eignar:

 

-Íbúð:

-Geymsla í sameign:

117,0 fm.

108,2 fm.

 8,8 fm.

Verð:

80,9 millj.

K55_svalagangur_L.jpg

Svalagangur

Aðgengi að íbúðum í Kjarnagötu 55 er um 14 fm. sér svalagang framan við hverja íbúð sem snýr í suð-vestur. Snjóbræðsla er í svalagangi og hann klæddur með pallaefni. Glerhandriði er á svalagöngum, og afhendist með svalaskjóli/lokun.

Svalir

Svalir eru á norð-austur hlið íbúða. Svalirnar eru klæddar með pallaefni. Glerhandriði er á svölum.

K55_svalir.jpg

Grunnplan

Notaðu örvarnar til að skoða 3 eða 4 herbergja útfærslu á íbúðinni

Frágangur íbúða

Allar innréttingar eru frá danska framleiðandanum HTH. Kaupendur geta valið um tvær útfærslur af innréttingum, Mood eða Oslo.

Mood

efnisval_mood_2.png

Dökkbrún viðaráferð úr harðplasti með hámarks slitþoli í eldhúsi, baði, þvottahúsi og forstofu.

Ljós mokka lituð filma í efri skápum í eldhúsi og fataskápum í herbergjum.

Lamineruð borðplata með ljósri marmara áferð.

Oslo

efnisval_oslo_2.png

Ljós viðaráferð úr harðplasti með hámarks slitþoli í eldhúsi, baði, þvottahúsi og forstofu.

Hvítt lakkað MDF efni í efri skápum í eldhúsi og fataskápum í herbergjum.

Lamineruð borðplata með ljósgrárri marmara áferð.

efnisval_mood_daemi.jpg

Dæmi um eldhúsinnréttingu í Mood

efnisval_oslo_daemi.jpg

Dæmi um eldhúsinnréttingu í Oslo

Eldhús

Efri skápar í eldhúsi eru með innfeldri LED lýsingu. Með eldhúsinnréttingu fylgir bakarofn, keramik helluborð og háfur frá AEG. Gert er ráð fyrir plássi fyrir uppþvottavél. Uppþvottavél fylgir ekki.

Baðherbergi

Veggir á baðherbergi sem mætast við sturtuhorn eru flísalagðir. Veggir við inngangshurð og bakvið innréttingu eru máliðir. Klósettkassi er innbyggður. Glerhurðir eru við sturtu. Spegill á baði er með innfelldri LED lýsingu.

Þvottahús

Í þvottahúsi er innrétting með vaski og plássi fyrir þvottavél og þurkara.

Fataskápar

Fataskápar eru í forstofu, hjónaherbergi og barnaherbergjum.

Fyrirvari

Allar þrívíddarteikningar, bæði af húsi og innréttingum, eru hugsaðar til að gefa nokkuð góða hugmynd að útliti og frágangi, en gefa ekki nákvæma endanlega mynd. Einhver útlits og útfærslu munur getur verið frá þrívíddarteikningum og endanlegri söluvöru.

bottom of page