top of page

Lautarmói 1 - 3 - 5

Skilalýsing

Upplýsingar í skilalýsingu geta breyst á byggingartíma. Leitast verður við að halda sambærilegum gæðum byggingarhluta og íhluta, breytist þeir á byggingartíma.

Hönnun

Hönnun er unnin af teikni- og verkfræðistofunni Opus ehf.

Hönnun raflagna er unnin af Raftákn ehf.

Lautarmói 1-3-5 er þrjú hús með sameiginlegum bílakjallara.

Lautarmói 1 er 10 íbúða hús á fimm hæðum, Lautarmói 3 er 20 íbúða hús á fjórum hæðum og Lautarmói 5 er 20 íbúða hús á fimm hæðum.

 

Í hverju húsi er sameiginleg hjóla og vagnageymsla í kjallara, þar sem hver íbúð verður líka með sér geymslu. Í kjöllurum verða einnig tæknirými og aðstaða fyrir ræstingar. Í bílageymslu verða 50 bílastæði. Íbúðunum öllum fylgja opnar svalir. Svalagangar eru við inngang íbúða.

 

 


Frágangur utanhúss

Útveggir: Allir útveggir húsanna eru einangraðir að utan með 100mm steinull. Húsið er klætt að utan með litaðri panelklæðningu úr áli. Á svölum og svalagöngum eru veggir klæddir með hitameðhöndlaðri viðarklæðningu samkvæmt teikningu.

 

Gluggar og hurðir: Allir gluggar og hurðir íbúða eru ál/tré gluggar frá danska framleiðandanum Ideal Combi, af gerðinni Nation IC, allir gluggar og hurðir eru með tvöföldu sólstopp gleri (suncool 50/25).

 

Þak: Loftaplötur eru steyptar. Þak er viðsnúið, með tvöföldu lagi af heilbræddum pappa á slípaðan og grunnaðan steininn. Ofan á pappan kemur XPS einangrun hulin með grjóti.

Svalir: Svalagólf er klætt með komposit pallaefni, handriði er samkvæmt teikningu.

Svalagangar: Snjóbræðslukerfi á svalagöngum. Glerlokun er á svalagöngum.

Lóð: Stéttar við innganga eru steyptar/hellulagðar með snjóbræðslukerfi, bílastæði eru malbikuð. Lóð er þökulögð í samræmi við teikningar. Lóð yfir bílageymslu er þökulögð og þar verður svæði fyrir leiktæki. Gróður verður á lóð samkvæmt teikningu.

 

Djúpgámar: Djúpgámar verða á tveimur stöðum á lóð samkv. teikningu.

Loftræsting: Vélrænt útsog er frá baðherbergi, og þvottahúsi þar sem það á við, samkv. teikningum.

 

Frágangur innanhúss

Sameign: Gólf í kjallara í hjóla- og vagnageymslum er steypt og máluð. Gólf og Stigar í stigahúsum eru steypt og flísalögð/teppalögð. Stigahús og veggir í sameign eru málaðir í lit völdum af hönnuði hússins.

Bílageymsla: Gólf í bílageymslu eru steypt, og liggur frárennsli hitaveitu í gólfið til upphitunar. Gólf verða ómáluð fyrir utan merkingar á bílastæðum. Rafmagnstengill (13 ampera, einfasa) til bílhleðslu verður við öll stæði í bílageymslu. Aðstaða til bílaþvotts verður í bílageymslu.

Lyftur: Lyftur eru í húsinu frá viðurkenndum framleiðanda.

Útveggir: Allir útveggir eru sandsparslaðir og málaðir.

Innveggir: Allir innveggir/léttveggir eru klæddir tvöföldu gipsi á stálstoðum, sparslaðir og málaðir.

Loft í íbúðum: Loft eru sandspörsluð og máluð.

Gólf í íbúðum: Burðarplata er steypt þar sem einangrun og hitalögn er lögð ofaná aður en sjálf gólfplatan er steypt. Með þessu næst hámarks hljóðeinangrun milli hæða. Vínil parket er á gólfum íbúða, flísar eru á gólfum baðherbergis og þvottahúss.

Pípulögn: Gólfhitakerfi er í öllum íbúðum, neysluvatns- og frárennslislagnir eru lagðar samkv. verkfræðiteikningum.

Raflögn: Raflögn er fullfrágengin, ljósakúplar eru í eldhúsi, baði, þvottahúsi og geymslu. Innfeld lýsing er í eldhúsinnréttingu. Innfelt ljós er í spegli á baði. Önnur ljós fylgja ekki innan íbúðar. Öll lýsing í sameign verður fullbúinn. Útiljós eru á svalagöngum og svölum. Við innganga húsanna verður útilýsing. Reykskynjarar eru í öllum íbúðum og sameign samkv. teikningu. Mynd-dyrasími er í öllum íbúðum.

Innréttingar og skápar: Innréttingar í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi eru frá danska framleiðandanum HTH, samkv. teikningu framleiðana. Skápar eru í forstofu, hjónaherbergi og barnaherbergjum samkv. teikningum. Yfirborð allra innréttinga er úr harðplasti/sprautulakkað. Harðplast er á borðplötum.

Eldhús: Með eldhúsinnréttingu fylgir innbyggður ísskápur og uppþvottavél, bakarofn, spanhelluborð og háfur.

Baðherbergi: Veggir á baðherbergi sem mætast við sturtuhorn eru flísalagðir. Veggir við inngangshurð og bakvið innréttingu eru máliðir. Klósettkassi er innbyggður. Glerhurðir eru við sturtu.

Þvottahús: Veggir í þvottahúsi eru málaðir.

Hreinlætistæki: Öll hreinlætis- og blöndunartæki eru af viðurkenndri gerð og koma þar sem teikningar sýna.

Hurðir: Innihurðir eru hvítar sprautulakkaðar. Handföng eru með stáláferð. Í sameign eru eldvarnahurðir (EI230-Cs).

Eldvarnir: Hver íbúð er sjálfstætt brunahólf. Reykskynjari og handslökkvitæki verður sett upp í hverri íbúð. Eldvarnahurðir eru í sameign samkv. teikningu.

Annað: Í öllum íbúðum verður settur upp læstur lyfjaskápur.

bottom of page