top of page

Kjarnagata 57 - Skilalýsing

 

 

Skilalýsing

 

Upplýsingar í skilalýsingu geta breyst á byggingartíma. Leitast verður við að halda a.m.k. sambærilegum gæðum byggingarhluta og íhluta, breytist þeir á byggingartíma.

 

Hönnun

 

Hönnun hússins er unnin af teikni- og verkfræðistofunni Opus ehf. Hönnun raflagna er unnin af Raftákn ehf.

Húsið er staðsett við kjarnagötu 57 og er á þremur og fjórum hæðum, auk kjallara og bílageymslu, með lyftu alls 33 íbúðir. Íbúðunum fylgir sameiginleg hjóla og vagnageymsla í kjallara, þar sem hver íbúð verður líka með sér geymslu. Í kjallara verða einnig tæknirými og aðstaða fyrir ræstingu. Í bílageymslu verða 30 bílastæði. Íbúðunum öllum fylgja opnar svalir. Svalagangur með glerlokun er við inngang íbúða.

 

 

Frágangur utanhúss

 

Útveggir: Allir útveggir hússins eru einangraðir að utan með 100mm steinull. Húsið er klætt að utan með lituðu áli, láréttri báru og sléttum plötum. Á svölum og svalagöngum eru veggir klæddir með viðarklæðningu og/eða sléttum álplötum, samkvæmt teikningu.

Gluggar og hurðir: Allir gluggar og hurðir íbúða eru ál/tré gluggar frá danska framleiðandanum Ideal Combi, af gerðinni Futura+, allir gluggar og hurðir eru með tvöföldu sólstopp gleri (suncool 50/25).

Þak: Loftaplata er steypt. Þak er viðsnúið, með tvöföldu lagi af heilbræddum pappa á slípaðan og grunnaðan steininn. Ofan á pappan kemur XPS einangrun hulin með möl.

Svalir: Svalagólf er klætt með pallaefni, handriði er samkvæmt teikningu.

Svalgangur: Snjóbræðslukerfi er á svalagöngum og eru þeir hellulagðir með gúmmíhellum. Glerlokun er á svalagangi.

Lóð: Stéttar við innganga eru steyptar með snjóbræðslukerfi, bílastæði eru malbikuð. Lóð er þökulögð í samræmi við teikningar. Lóð yfir bílageymslu er þökulögð, og handriði samkv. teikingum. Engar aðrar girðingar né annar gróður fylgir.

Loftræsting: Vélrænt útsog er frá baðherbergi/þvottahúsi þar sem það á við samkv. teikningum.

 

Frágangur innanhúss

Sameign: Gólf í kjallara í hjóla- og vagnageymslu er steypt og málað. Gólf og Stigi í stigahúsum eru steypt og flísalögð/teppalögð. Stigahús og veggir í sameign eru málaðir í lit völdum af hönnuði hússins.

Bílageymsla: Gólf í bílageymslu eru steypt, og verður frárennsli hitaveitu steypt i gólfið til upphitunar. Gólf verða ómáluð fyrir utan merkingar á bílastæðum. Raflögn fyrir rafmagnsbíla verður við öll stæði í bílageymslu. Aðstaða til bílaþvotts verður í bílageymslu.

Lyftur: Lyftur eru í húsinu frá viðurkenndum framleiðanda.

Útveggir: Allir útveggir eru sandsparslaðir og málaðir.

Innveggir: Allir innveggir/léttveggir eru klæddir tvöföldu gipsi á stálstoðum, sparslaðir og málaðir.

Loft í íbúðum: Loft eru sandspörsluð og máluð.

Gólf í íbúðum: Burðarplata er steypt þar sem einangrun og hitalögn er lögð ofaná aður en sjálf gólfplatan er steypt. Með þessu næst hámarks hljóðeinangrun milli hæða.Harðparket er á gólfum íbúða, flísar eru á gólfum baðherbergis, þvottahúss og forstofu.

Pípulögn: Gólfhitakerfi er í öllum íbúðum, neysluvatns- og frárennsislagnir eru lagðar samkv. verkfræðiteikningum.

Raflögn: Raflögn er fullfrágengin, ljósakúplar eru á baði, þvottahúsi og geymslu. Innfeld lýsing er í eldhúsinnréttingu. Innfelt ljós er í spegli á baði. Önnur ljós fylgja ekki innan íbúðar. Öll lýsing í sameign verður fullbúinn. Útiljós eru á svalagöngum og svölum. Við innganga hússins verður útilýsing. Reykskynjarar eru í öllum íbúðum og sameign samkv. teikningu. Mynd-dyrasími er í öllum íbúðum.

Innréttingar og skápar: Innréttingar, í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi eru frá danska framleiðandanum HTH, samkv. teikningu framleiðana. Skápar eru í forstofu, hjónaherbergi og barnaherbergjum samkv. teikningum. Yfirborð allra innréttinga er úr harðplasti. Harðplast er á borðplötum.

Eldhús: Með eldhúsinnréttingu fylgir bakarofn, keramik helluborð og háfur frá AEG. Gert er ráð fyrir plássi fyrir uppþvottavél. Uppþvottavél fylgir ekki.

Baðherbergi: Veggir á baðherbergi sem mætast við sturtuhorn eru flísalagðir. Veggir við inngangshurð og bakvið innréttingu eru máliðir. Klósettkassi er innbyggður. Glerhurðir eru við sturtu.

Þvottahús: Veggir í þvottahúsi eru máliðir.

Hreinlætistæki: Öll hreinlætis- og blöndunartæki eru af viðurkenndri gerð og koma þar sem teikningar sýna.

Hurðir: Innihurðir eru hvítar sprautulakkaðar. Handföng eru með stáláferð. Í sameign eru eldvarnahurðir (EI230-Cs) lakkaðar í lit völdum af hönnuði hússins.

Eldvarnir: Hver íbúð er sjálfstætt brunahólf. Reykskynjari og handslökkvitæki verður sett upp í hverri íbúð. Eldvarnahurðir eru í sameign samkv. Teikningu.

Annað: Í öllum íbúðum verður settur upp læstur lyfjaskápur.

bottom of page