Íbúð 403
2 herbergja íbúð á 4. hæð.
Íbúðinni fylgir bílastæði í bílageymslu.
Íbúðin afhendist fullfrágengin. Flísar eru á gólfum baðherbergis og forstofu en harðparket er á öðrum gólfum. Innihurðir eru hvítar sprautulakkaðar.
Vélrænt útsog er frá baðherbergi og eldhúsviftu. Allt neysluvatn fer í gegnum varmaskipti.
Mynd-dyrasími er í íbúðinni.
Burðarplata er steypt þar sem einangrun og gólfhitalögn er lögð ofaná áður en sjálf gólfplatan er steypt. Með þessu næst hámarks hljóðeinangrun milli hæða.
Stærðir:
Stærð eignar:
-Íbúð:
-Geymsla í sameign:
48,7 fm.
40,2 fm.
8,5 fm.
Verð:
31,5 millj.

Grunnplan

Frágangur íbúða

Allar innréttingar eru frá danska framleiðandanum HTH. Yfirborð allra innréttinga er úr harðplasti með hámarks slitþoli. Kaupendur geta valið um tvær útfærslur af innréttingum, One eða Oslo.

One
One útfærslan er með svartri viðaráferð og ljósgrárri borðplötu með marmara áferð.

Oslo
Oslo útfærslan er með ljósri viðaráferð og ljósgrárri borðplötu með marmara áferð.
Eldhús
Efri skápar í eldhúsi eru hvítir háglans með innfeldri LED lýsingu. Með eldhúsinnréttingu fylgir bakarofn, keramik helluborð og háfur frá AEG. Gert er ráð fyrir plássi fyrir uppþvottavél. Uppþvottavél fylgir ekki.
Baðherbergi
Veggir á baðherbergi sem mætast við sturtuhorn eru flísalagðir. Veggir við inngangshurð og bakvið innréttingu eru máliðir. Klósettkassi er innbyggður. Glerhurðir eru við sturtu. Spegill á baði er með innfelldri LED lýsingu.
Fataskápar
Fataskápar eru í forstofu, hjónaherbergi og barnaherbergjum.
Fyrirvari
Allar þrívíddarteikningar, bæði af húsi og innréttingum, eru hugsaðar til að gefa nokkuð góða hugmynd að útliti og frágangi, en gefa ekki nákvæma endanlega mynd. Einhver útlits og útfærslu munur getur verið frá þrívíddarteikningum og endanlegri söluvöru.